Humla tegundir.
Í framhaldi af fyrri frétt um humla, þá viljum við segja ykkur hvaða tegundir við erum að nota í Kalda bjórinn.
Við notum Saaz og Sladek humla frá Tékklandi.
Einnig notum við humla frá nýja Sjálandi sem heita Wakatu en hétu áður því langa nafni, New Zealand Hallertau Aroma.
Humlar eru náttúrulegt rotvarnarefni og ástæðan fyrir því að gæða bjór er hafður í dökku gleri er sú, að humlar eru viðkvæmir fyrir birtu.
Kveðja, starfsfólk Bruggsmiðjunnar.


