Bruggsmiðjan með "sérmerkingar"
Almennt - miðvikudagur 4.jún.08 14:30 - Kristinn Ingi Valsson - Lestrar 888
Bruggsmiðjan vill benda áhugasömum á að fyrirtækið tekur að sér að "sér merkja" bjór fyrir fyrirtæki eða einstaklinga. Það þýðir að þeir sem vilja geta fengið bjór með sínum eigin límmiða. Þetta hefur verið sérstaklega vinsælt á fyrirtækjum í kringum sérstakan viðburð t.d. hjá Togurum í kringum sjómannadaginn. Þeir sem hafa áhuga endilega hafið samband við okkur og við útskýrum fyrir ykkur hvernig þetta gengur fyrir sig.


