Enginn titill
Almennt - miðvikudagur 25.apr.12 12:34 - Bruggsmidjan - Lestrar 519
Góðan daginn kæru vinir.
Okkur langar að fara stuttlega yfir framleiðsluferil Bruggsmiðjunnar með ykkur.
Bruggsmiðjan Kaldi var stofnuð í Mars árið 2006. Fyrsta bruggun var 22 Ágúst sama ár, fyrsta átöppun var svo 28 September og formleg opnun verksmiðjunnar var 30 September 2006.
Fyrsta heila árið, var ársframleiðslan ca 170.000 lítrar (220.000 flöskur).
Búið er að stækka verksmiðjuna þrisvar á þessum fimm árum og er ársframleiðslan árið 2011 komin uppí 500.000 til 550.000 lítra (1,1 milljón flöskur).
Þannig að, á þessum fimm árum hefur framleiðslan aukist um ca 380%.
Við viljum nota tækifærið og þakka ykkur kæru vinir fyrir allan stuðninginn og ánægjuleg viðskipti.
Kveðja starfsfólk Bruggsmiðjunnar.


