Fréttir
Almennt - mánudagur 3.mar.08 14:05 - Kristinn Ingi Valsson - Lestrar 1235
Þá hefur Páska Kaldi verið í sölu í tæpar tvær vikur og hafa viðtökurnar verið frábærar. Það er greinilegt að fólk er að taka vel í þessa nýjung hjá Bruggsmiðjunni að koma með "sérbjóra", Þorra Kalda og Páska Kalda. Það er aldrei að vita nema að þeir verði fleiri í framtíðinni.
Nú er sölunni á Þorra Kalda lokið. Sölunni lauk 1. mars. Hann var ótrúlega vinsæll og sem dæmi um það þá var janúar næst söluhæsti mánuðurinn frá upphafi Bruggsmiðjunnar, og munaði aðeins nokkrum kössum. Endanlegar sölutölur eru ekki tilbúnar ennþá en við munum birta þær hér á síðunni um leið og þær berast.
Við viljum þakka frábærar viðtökur á þessari nýjung hjá Bruggsmiðjunni og um leið að hvetja alla áhugasama að prófa Páska Kalda, og benda á að hann verður seldur í takmörkuðu magni, og í mjög takmarkaðan tíma.


