Fréttir

Jóla Kaldi selst vel

Salan á jólabjórum fór af stað í ÁTVR, fimmtudaginn síðasta, 19. nóvember, og þar á meðal var Jóla Kaldi. Það má segjast að Jóla Kaldi hafi vægast sagt fengið frábærar viðtökur.

Salan á Jóla Kalda þessa fyrstu helgi var framar björtustu vonum, og er það greinilegt að góð umfjöllun og góðar undirtektir á síðasta ári eru að skila sér í enn meiri vinsældum í ár. Jóla Kaldi var mest seldi íslenski jólabjórinn þessa fyrstu helgi, ef miðað er við flöskur og dósir í tvennu lagi. Sem sagt mest seldi bjórinn í flöskum, og seldist meira en mest seldi bjórinn í dósum. Það er alveg ljóst að með þessu áframhaldi mun Jóla Kaldi seljast upp fyrir jól, þannig að þeir sem vilja næla sér í kippu ættu ekki að bíða of lengi.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir Bruggsmiðjuna og viljum við þakka kærlega fyrir þessar góðu móttökur.



Könnun

Hvaða Kaldi er bestur?







Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Heimsóknir

Í dag: 48
Samtals: 64037
...

Deildarval

Framsetning efnis

BRUGGSMIÐJAN Öldugötu 22::621 Árskógssandi::sími:466 2505::Fax 466 2510::email:bruggsmidjan@bruggsmidjan.is
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning