Jóla Kaldi valinn BESTI JÓLABJÓRINN
Jóla Kaldi var valinn besti jólabjórinn í könnun á vegum DV.
Jóla Kaldi fékk hæstu einkunn í smökkun á vegum DV sem var gerð fyrir helgi. Dómarar voru vínsmakkararnir Dominique Plédel Jónsson og Stefán Baldvin Guðjónsson, leikstýran Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann og sagnfræðingurinn Stefán Pálsson.
Smakkaðir voru allir jólabjórarnir sem seldir eru í Vínbúðunum eða 11 talsins. Það er skemmst frá því að segja að Jóla Kaldi fékk hæstu einkunn, eða 4 stjörnur af 5 mögulegum. Verstu einkunn fékk hinsvegar Víking Jólabjór í flösku.
Við hjá Bruggsmiðjunni erum ótrúlega ánægð með viðtökurnar sem Jóla Kaldi hefur fengið. Við erum búin að senda frá okkur allan þann jólabjór sem verður framleiddur þetta árið. Eitthvað er ennþá til í Vínbúðunum en það fer hver að verða síðastur að krækja í kippu af Jóla kalda.


