Fréttir

Jólakaldi-Stækkun-Gullfoss

Það hefur verið margt að gerast hjá Bruggsmiðjunni upp á síðkastið svo sem jólabjór,stækkun,Gullfoss og fleira.

Eftir mjög góðar viðtökur á bæði Þorra- og Páska Kalda, þá hefur verið ákveðið að koma með Jóla Kalda á markaðinn næstu jól. Eins og alltaf þá hefur verið ákveðið að vanda vel til verka og búa til bjór sem hentar vel yfir jólin. Jóla Kaldi verður að sjálfsögðu ógerilssneyddur, án viðbætts sykurs og án allra rotvarnarefna, eins og allir hinir bjórarnir frá Bruggsmiðjunni. Bjórinn verður væntanlegur á markaðinn um miðjan nóvember. Nánari upplýsingar um bjórinn koma á síðuna þegar nær dregur. 

Það er búið að festa kaup á 3 nýjum gerjunartönkum. Tankarnir taka 4000 lítra hver sem þýðir að framleiðslugetan eykst töluvert. Í dag rúma gerjunartankarnir 22 þúsund lítra, en verður 34 þúsund lítrar með nýju tönkunum. Þá er búið að stækka gerjunarplássið um 20 þúsund lítra frá því að verksmiðjan opnaði. Tankarnir eru væntanlegir um mánaðarmótin október-nóvember.

Gullfoss hefur farið mjög vel af stað. Gullfoss er eins og áður hefur komið fram bjór sem við framleiðum fyrir Ölgerð Reykjavíkur. Á heimasíðu ÁTVR, vinbudin.is, þá er honum líst sem "Ljósrafgullinn, meðalfylling, þurr, ferskur, lítil beiskja. Léttristað korn, léttur grösugur humlakeimur, sítrustónar." Gullfossi hefur verið tappað á tvisvar og þriðja átöppunin er væntanleg innan skamms.

                                               12669

 

 

 

 

 



Könnun

Hvaða Kaldi er bestur?







Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Heimsóknir

Í dag: 77
Samtals: 169049
...

Deildarval

Framsetning efnis

BRUGGSMIÐJAN Öldugötu 22::621 Árskógssandi::sími:466 2505::Fax 466 2510::email:bruggsmidjan@bruggsmidjan.is
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning