Kynningar lækka
Almennt - þriðjudagur 3.feb.09 07:03 - Kristinn Ingi Valsson - Lestrar 1017
Vegna ástands í þjóðélaginu þá hefur Bruggsmiðjan ákveðið að lækka verð á bjórkynningum.
Vegna efnahagsástands í þjóðfélaginu hefur Bruggsmiðjan ákveðið að koma til móts við fólk með því að lækka verðið á bjórkynningum. Í slíkri heimsókn er farið í gegnum starsemi fyrirtækisins, framleiðsluferli Kalda og að sjálfsögðu er fólki boðið uppá hressingu á meðan á kynningunni stendur. Einnig fá gestir að eiga glasið sem þeir drekka úr sem er sérmerkt Kalda. Hingað til hefur slík heimsókn kostað 1000 kr á mann en hefur nú lækkað niður í 700 kr á mann fyrir hópa sem eru 10 manns eða færri, og 500 kr ef um stærri hóp er að ræða.


