Nýr bjór
Almennt - föstudagur 25.júl.08 08:57 - Kristinn Ingi Valsson - Lestrar 1017
Bruggsmiðjan er komin í samstarf við Ölgerð Reykjavíkur um framleiðslu á nýjum bjór. Reiknað er með að fyrsta átöppun af nýja bjórnum fari fram í næstu viku.
Bjórinn sem um ræðir heitir Gullfoss og er ljós lager bjór. Bruggsmiðjan sér alfarið um framleiðsluna á bjórnum. Bjórinn er samt sem áður framleiddur fyrir Ölgerð Reykjavíkur. Gullfoss er eins og hinir bjórarnir frá Bruggsmiðjunni, án rotvarnarefna og án viðbætts sykurs, en er þó bruggaður á allt annan hátt. Fyrsta lögun er að verða tilbúin þannig að við vonumst til að geta tappað honum á flöskur í næstu viku. Við munum setja inn myndir af átöppuninni í næstu viku.

