Nýr bjór á markaðinn-Norðan Kaldi
Almennt - miðvikudagur 5.maí.10 08:12 - Kristinn Ingi Valsson - Lestrar 1567
Nú er lokið fyrstu átöppun á nýjasta bjórnum frá Bruggsmiðjunni, Norðan Kalda.
Norðan Kaldi er nýjasta tegundin frá Bruggsmiðjunni og mun hann fara í sölu á allra næstu dögum. Norðan Kaldi er sérbruggað öl sem er gerjað með ensku eðal geri. Ölið ber fínlegt beiskjubragð af einstökum humlum frá Tékklandiog Nýja Sjálandi.


