Nýr bjór á markaðinn
Almennt - fimmtudagur 7.maí.09 14:56 - Bruggsmidjan - Lestrar 945
Það er nýr bjór væntanlegur á markaðinn frá Bruggsmiðjunni. Hann er væntanlegur í sölu innan skamms.
Nýji bjórinn er svokallaður Lite bjór. Lite bjórar hafa verið vinsælir síðustu ár, sérstaklega vegna þess að þeir innihalda færri kaloríur. Lite Kaldi er eini Íslenski Lite bjórinn sem er ógerilsneyddur, eins og allir bjórarnir frá Bruggsmiðjunni Við erum mjög ánægð með útkomuna á Lite Kalda. Hann er góður á bragðið og mjög svalandi.
Kaldi Lite kemur á markaðinn í byrjun júní.


