Nýr bjór og Þorra Kaldi á leiðinni.
Stinnings Kaldi er kominn í "Kjarna" sem þýðir að honum er dreift í mun fleiri búðir á landinu.
Stinning Kaldi er ný afurð Bruggsmiðjunnar, og er einstakur að því leiti að það er bætt hvönn við ölið sem gerir bragðið alveg einstakt. Hvönnin er skorin í Hrísey og unnin af Saga Medica, þeir eru einmitt samstarfsaðilar Bruggsmiðjunnar í gerð bjórsins.
Ætihvönn er ein þekktasta íslenska lækningajurtin og hefur verið notuð á Íslandi allt frá landnámi.
Hvönnin hefur einnig lengi verið notuð til matargerðar og sem krydd, til dæmis í líkjöra.

Bruggsmiðjan er nú í fullu fjöri við að brugga til Þorra Kalda og er hann væntanlegur í sölu föstudaginn 21. Janúar.
Þorra Kaldi verður milli-dökkur lager bjór.
Bruggsmiðjan þakkar viðskiptavinum sínum fyrir stórkostlegar viðtökur á Jólabjórnum okkar, sem sló öll sölumet hjá Bruggsmiðjunni.


