Páska Kaldi kominn í sölu
Almennt - miðvikudagur 25.feb.09 09:08 - Kristinn Ingi Valsson - Lestrar 780
Þá erum við búin að senda frá okkur fyrstu sendingu af Páska Kalda og fer hann í sölu 24. febrúar.
Sölunni af Þorra Kalda er nú lokið og þá tekur Páska Kaldi við. Þorra Kaldi seldist mjög vel eins og við vonuðumst til. Þorra Kaldi er bjór sem hefur slegið í rækilega í gegn og er greinilega kominn til að vera árlega.
Páska Kaldi verður með aðeins öðru sniði en í fyrra. Við vorum ekki alveg nógu sátt með miðan á flöskunni íog létum hanna nýjan miða sem kemur mjög vel út. Einnig eru smávægilegar breytingar á uppskriftinni sem eru án efa til hins betra. Hann verður þó líkt og aðrir árstímabundnir bjórar seldur í takmörkuðu magni innan afmarkaðs tíma. Við erum mjög ánægð með Páska bjórinn í ár og bíðum spennt eftir að sjá viðtökurnar við honum.


