Sérmerkingar
Almennt - föstudagur 24.okt.08 12:45 - Kristinn Ingi Valsson - Lestrar 1030
Það hefur verið mikið að gera undanfarna mánuði í sérmerkingum á bjór. Í sérmerkingu getur fólk látið útbúa fyrir sig sinn eigin límmiða sem er síðan notaður á Kalda.
Það er greinilegt að fólk er að átta sig á þessum möguleika og eru margir sem panta aftur og aftur. Yfirleitt er um að ræða fyrirtæki og starfsmannafélög en að sjálfsögðu er öllum opið að panta. Nú þegar eru nokkrir aðilar búnir að panta sérmerkingu fyrir jólin. Þeir sem hafa áhuga á að fá sérmerktan Kalda fyrir jólin geta haft samband við okkur á bruggsmidjan@bruggsmidjan.is eða í síma 4662505.

