Fréttir

Þorra Kaldi

Í dag, 13. janúar var tappað á fyrstu lögun af Þorra Kalda.

Fyrstu átöppun af Þorra Kalda er lokið. Hann er alveg eins og í fyrra. Eins og með hina árstíðarbundnu bjórana frá okkur, Jóla Kalda og Páska Kalda, þá verður Þorra Kaldi aðeins framleiddur í takmörkuðu magni í takmarkaðan tíma. Áætlað er að hann fari í sölu 23. janúar. Í fyrra fengum við mikið lof fyrir Þorra Kalda og margir vilja meina að hann sé besti bjórinn frá okkur og hreinlega besti bjór sem til er. Þannig að það eru eflaust margir sem bíða spenntir.

Jóla Kaldi fékk ótrúlega góðar viðtökur og seldist upp á öllu landinu löngu áður en sölutíminn rann út. Fólk var mjög ánægt með Jóla Kalda í alla staði og var hann meðal annars valinn besti jólabjórinn í könnun á vegum DV. Við viljum þakka öllum fyrir frábærar viðtökur.



Könnun

Hvaða Kaldi er bestur?







Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Heimsóknir

Í dag: 0
Samtals: 89815
...

Deildarval

Framsetning efnis

BRUGGSMIÐJAN Öldugötu 22::621 Árskógssandi::sími:466 2505::Fax 466 2510::email:bruggsmidjan@bruggsmidjan.is
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning