Þjónusta sem að boðið er uppá hjá Bruggsmiðjunni er m.a. það að við tökum á móti hópum í vísindaferðir. Heimsóknin kostar 500 kr. á mann, en verður 700 á mann frá og með áramótum 2009-10. Innifalið í því er kynning á fyrirtækinu og starfsemi þess. Boðið er uppá hressingu á meðan á kynningunni stendur, og svo fær fólk að eiga glasið sem það drekkur úr sem er sérmerkt Kalda. Við reiknum með að hver heimsókn taki ca klukkutími, þó svo margir kjósi að stoppa styttra. Allir sem að hafa áhuga eru beðnir um að hafa samband á bruggsmidjan@bruggsmidjan.is eða í síma 4662505.


