Bruggsmiðjan framleiðir 6 gerðir af bjórnum Kalda. Þrír af þessum bjórum eru framleiddir allt árið, og aðrir 3 eru svokallaðir árstíðabundnir bjórar sem eru einungis í sölu í stuttan og afmarkaðan tíma.
Fyrst ber að nefna ljósan Kalda, sem er ljós lager bjór . Einnig erum við með dökkan Kalda, sem er dökkur lager bjór. Vorið 2009 kom svo á markaðinn Lite Kaldi, sem er kaloríusnauður lager bjór. Árstíðarbundu bjórarnir eru Jóla-, Páska- og Þorra Kaldi. Jóla- og Páska Kaldi eiga það sameiginlegt að vera miklir bjór, þ.e. mikið bragð, mikil lykt og meira alkóhól innihald. Þorra Kaldi er síðan millistigs útgáfa milli ljósa Kalda og Dökka Kalda.
Bruggsmiðjan býður einning uppá léttöl, en aðeins í litlu mæli.
Það sem allir þessi bjórar eiga sameiginlegt er að þeir eru bruggaðir eftir aldagamalli Tékkneskri hefð síðan 1842, sem er þó búið að breyta aðeins til að fá þennan sérstaka bjór. Bjórarnir frá Bruggsmiðjunni eru einu íslensku bjórarnir sem eru ógerilsneyddir og það er engin viðbættur sykur og engin rotvarnarefni. Það er einungis notað besta hráefni sem völ er á, tékkneskt maltað bygg og 3 tegundir af tékkneskum humlum.


