Vörur

Bruggsmiðjan framleiðir 8 gerðir af bjórnum Kalda. Þrír af þessum bjórum eru framleiddir allt árið, og aðrir 3 eru svokallaðir árstíðabundnir bjórar sem eru einungis í sölu í stuttan og afmarkaðan tíma.

Fyrst ber að nefna ljósan Kalda sem er ljóskopargullinn lager bjór með mjúkri meðalfyllingu, þurr, ferskur, nokkuð beiskur með mjúkt ristuðu byggi og fínum humlakeim.

kaldi_lager_1_640 

Einnig erum við með dökkan Kalda sem er rafbrúnn dökkur lager bjór, meðalfylling, þurr, ferskur og beiskur.  Í honum er vel ristað bygg og góðum humlakeim.

kaldi_dkkur_02_640

Vorið 2009 kom svo á markaðinn Lite Kaldi, sem er kaloríusnauður lager bjór. Kaldi Lite er ljósgullinn með léttri fyllingu, þurr, ferskur, lítið beiskur og með léttum blómlegum kornkeim.

p1010360_640

 

Norðan Kaldi kom á markað vorið 2010 og varð mjög vinsæll meðal þeirra sem drekka bjór með kröftugu bragði, þéttum humlakeim og beiskju. Norðan Kaldi er frábrugðinn öðrum bjórum okkar að því leyti að hann er bruggaður eftir annarri hefð en venjulegur lager bjór, og er Norðan Kaldi gerður sem öl.

noran

 

Okkar nýjasta vara heitir Stinnings Kaldi og er frábrugðin öllum öðrum bjórum. Stinnings Kaldi er öl sem er gert einstakt að því leiti að við blöndum Hvönn í ölið sem gerir bragðið alveg einstakt og ekki skemmir fyrir að hvönnin er holl fyrir hvern og einn að því leyti að hún eykur blóðflæði og skerpu. Við fáum hvönnina í bjórinn frá Hrísey þar sem hún vex í miklu magni.

stinnings_kaldi_flaska_640

 

Árstíðarbundu bjórarnir eru Jóla-, Páska- og Þorra Kaldi. Jóla- og Páska Kaldi eiga það sameiginlegt að vera miklir bjór, þ.e. mikið bragð, mikil lykt og meira alkóhól innihald. Þorra Kaldi er síðan millistigs útgáfa milli ljósa Kalda og Dökka Kalda.

 

img_8439_640jla_kaldi_01_640

Bruggsmiðjan býður einning uppá léttöl, en aðeins í litlu mæli.

Það sem allir þessi bjórar eiga sameiginlegt er að þeir eru bruggaðir eftir aldagamalli Tékkneskri hefð síðan 1842, sem er þó búið að breyta aðeins til að fá þennan sérstaka bjór. Bjórarnir frá Bruggsmiðjunni eru einu íslensku bjórarnir sem eru ógerilsneyddir og það er engin viðbættur sykur og engin rotvarnarefni. Það er einungis notað besta hráefni sem völ er á, tékkneskt maltað bygg og 3 tegundir af tékkneskum humlum.

Könnun

Hvaða Kaldi er bestur?







Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Heimsóknir

Í dag: 468
Samtals: 295324
...

Deildarval

Framsetning efnis

BRUGGSMIÐJAN Öldugötu 22::621 Árskógssandi::sími:466 2505::Fax 466 2510::email:bruggsmidjan@bruggsmidjan.is
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning