Velkomin(n)

Velkomin á heimasíðu Bruggsmiðjunar. Markmiðið með þessari síðu er að leyfa ykkur að fylgjast með starfsemi Bruggsmiðjunar. Á síðunni eru allar upplýsingar um fyrirtækið, allt um bjórinn Kalda, upplýsingar um bjórkynningar, myndir ofl. Ef síðan svarar ekki ykkar spurningum, þá endilega hafið samband við okkur og við munum gera okkar besta til að hjálpa ykkur.

Nýjustu fréttir

  • Humla tegundir.

    Í framhaldi af fyrri frétt um humla, þá viljum við segja ykkur hvaða tegundir við erum að nota í Kalda bjórinn.

    Við notum Saaz og Sladek humla frá Tékklandi.

    Einnig notum við humla frá nýja Sjálandi sem heita Wakatu en hétu áður því langa nafni, New Zealand Hallertau Aroma.

    Humlar eru náttúrulegt rotvarnarefni og ástæðan fyrir því að gæða bjór er hafður í dökku gleri er sú, að humlar eru viðkvæmir fyrir birtu.

     

    Kveðja, starfsfólk Bruggsmiðjunnar.


  • Humla plantan.

     

    http://www.google.is/imgres?imgurl=http%3A%2F%2Fi-cdn.apartmenttherapy.com%2Fuimages%2Fkitchen%2F2009-04-08-Hops.jpg&imgrefurl=http%3A%2F%2Fwww.thekitchn.com%2Fbeer-guide-what-are-hops-81267&h=342&w=540&sz=99&tbnid=J7vIQ4SJ_pqU6M%3A&tbnh=90&tbnw=142&prev=%2Fsearch%3Fq%3Dhops%2Bin%2Bbeer%26tbm%3Disch%26tbo%3Du&zoom=1&q=hops+in+beer&usg=__ALP6D_Zdv3dk0l9rmORPi9Q0LpE%3D&docid=ldNBWTETqP5MZM&hl=en&sa=X&ei=hKqUUZ3BHqqG0AWZ04GoAw&sqi=2&ved=0CHMQ9QEwCQ&dur=105

     

    Hér sjáið þið hvernig humlaplantan lítur út, fyrir og eftir meðhöndlun. Humlarnir sem við notum í okkar bjór koma frá Tékklandi og Nýja Sjálandi og eru gæða hráefni.

     

    Kveðja, starfsfólk Bruggsmiðjunnar Kalda.


  • Enginn titill

    Góðan daginn kæru vinir.

    Það er frekar langt síðan að við höfum látið eitthvað frá okkur fara hér á heimasíðunni en staðreyndin er sú að það er alltaf nóg að gera hjá okkur og er það vel.

    Nú stendur yfir átöppun eins og flesta aðra daga og mörg önnur verkefni í gangi eins og endranær.

    Það styttist líka óðum í nýja sumarbjórinn hjá okkur en hann fer líklega í sölu í byrjun Júní og verður mjög spennandi að heyra hvernig ykkur kæru vinir muni finnast hann.
     
    Sem sagt alltaf nóg að gera hjá okkur og endalaus gleði í gangi.

    Eigið góðan dag og byðjum nú þess öll sem eitt, að sumarið fari nú að láta sjá sig.
     
    Kveðja, starfsfólk

  • Sumar Kaldi.

    Góðan daginn kæru vinir.

    Nú ætlum við hjá Bruggsmiðjunni að koma með sumar bjór í fyrsta skiptið.

    Um er að ræða, hveitibjór.

    Sumar Kaldi er léttur og svalandi og er bruggaður í Þýskum hveitibjóra stíl en þó með Tékkneskum humlum.

    Í hann eru notaðar tvær tegundir af möltuðu byggi og svo að sjálfsögðu maltað hveiti.

    Sumar Kaldi verður 4,6% og ósíaður, sem þýðir að það er ger í honum.

    Gerið mun að miklu leyti setjast í botninn á flöskunni.

    Hann á helst að drekkast kaldur og alltaf í glasi.

    Kveðja, starfsfólk Bruggsmiðjunnar.


Könnun

Hvaða Kaldi er bestur?







Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Heimsóknir

Í dag: 182
Samtals: 292190
...

Deildarval

Framsetning efnis

BRUGGSMIÐJAN Öldugötu 22::621 Árskógssandi::sími:466 2505::Fax 466 2510::email:bruggsmidjan@bruggsmidjan.is
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning